Sept´06 Hulda,Helga,Jói og Geir að læra nýjustu hárlínur á Ítalíu.
Feb.'06. Námskeið hjá Björgu Árna. Á námskeiðið fóru Hulda, Jói og Jana.Fullt af flottum tískulínum fyrir sumarið.
7.-14.sept.'05. Jana Rut og Hulda fóru til Parísar. Jana Rut var í 1.sæti í keppni Juniora á Íslandi sem haldin var á vegum Intercoiffure og vann því þessa ferð. Hún sótti námskeið hjá Wella og Lorial. Jana Rut og Hulda fóru einnig á sýningar hjá Intercoiffure sem eru alþjóðleg samtök hárgreiðslufólks um allan heim.
Wella - París 2005
Academy - sýning í París 2005
Námskeið með Björgu Árna.
20.feb.'05. Annað námskeið með Björgu Árnadóttir. Nýjar sumar og haustlínur beint frá Ítalíu. Hulda,Helga,Jói,Guðný og Eva létu sig ekki vanta. Nú er bara að drífa sig og fá það nýjasta fyrir sumarið.
Redken námskeið
16.okt-17okt.'04 Hulda og Birna brugðu sér í borgina á lita- og klippinámskeið sem haldið var á vegum Redken. Kennarar voru Ellen Lawer og Daniel Doud frá USA. Íslenska Creative team var einnig með sýningu á tísku. Frábært námskeið og fullt af nýjum hugmyndum sem bíða næstu fórnarlamba.
Júní ´06. Hulda skellti sér á námskeið í Finnlandi.
8.-10.okt.'05. Fredrik Jonsson, meðlimur í Sebastian artistic team hélt sýningu og námskeið í Reykjavík. Helga, Geir og Þórdís fóru suður og unnu með Fredrik við að undirbúa sýninguna. Einnig lærðu þau nýju haustlínurnar Deo-Romance (Love is in the air) og kenndu okkur hinum þegar þau komu heim.
Lorial - París 2005
Intercoiffure - sýning í París 2005
Sebastian námskeið í Reykjavík
20.feb.'05.Jana Rut, Geir og Þórdís skelltu sér í höfuðborgina til að kynna sér vor og sumarlínur. Jericho Mora sá um námskeiðið en hann vinnur í Artistic team Sebastians sem ferðast um allan heiminn.
Las Vegas 2005
15-20.jan.'05.Redken ráðstefna í Las Vegas. Redken er leiðandi í hársnyrti -heiminum í dag bæði hvað varðar hárvörur og hártísku. Þarna voru saman komnir 10.000 hársnyrtar alls staðar að úr heiminum til að kynna sér allt það nýjasta.Frá Íslandi voru Hulda (Medulla Akureyri) Elsa,Jói,Astrid (Salon Veh R-vík) Jónína (Höfuðlausnir R-vík) Baldur, Hrefna (Mojo/Monroe R-vík) Arnar,Gunni (Salon Reykjavík). Frábær ferð sem aldrei gleymist.