Hvað er Intercoiffure?

Intercoiffure eru alþjóðleg samtök hárgreiðslufólks sem standa fyrir góðum orðstír og frammúrskarandi árangri. Intercoiffure sameinar hárgreiðslufólk af háum standard, bæði vegna áhuga þess á faginu og virðingu fyrir mannlegum samskiptum. 75 ára hefð Intercoiffure og útbreiðsla samtakanna á heimsvísu eru til vitnis um það.

Hvað þýðir það í framkvæmd?

Hvers get ég ætlast til af Intercoiffure? Vinskapar. Samvinnu. Háum staðli á stjórnum hárgreiðslustofa.kennslu og fræðslu fyrir unga fólkið á stofunum. Alþjóðlega tísku frá 35 löndum. Félagsanda. Skipti á reynslu. Bræðralagi. Til hvers ætlast Intercoiffure viðburðum. Sanngirni og umburðarlyndis. Viljatil samstarfs. Intercoiffure á Íslandi? Intercoiffure samtökin voru stofnuð árið 1925 og nefnast. Association Internationale Des maitrescoiffurs De Dames eða Intercoiffure. Aðalstöðvarnar eru í París. Árið 1980 gengu í Norsku-deild Intercoiffure í Kaupmannahöfn þau. Guðbjörn Sævar, Elsa Haraldsdóttir, Bára Kemp, Marteinn Guðmundsson, Sigríður Finnbjörnsdóttir. Vorum við auka deild innan Norsku-samtakanna í eitt ár. Árið 1981 var svo stofnuð Intercoiffure deild á Íslandi og komu þá í félagið þau, Hanna Kristín Guðmundsdóttir, Lovísa Jónsdóttir, Pálína Sigurbergsdóttir, Helga Jóakimsdóttir og Sigurður Grétar Benónýsson. Var inntakan í Noregi. Og þá var Ísland fullgilt innan aðalsamtaka Intercoiffure. Tilgangur félagsins er að rækta persónuleg sambönd á milli félaga þess og þróa góðan félagsanda. þá er það einnig tilgangur félagsins að fylgjast með tísku innan hárgreiðsluiðnaðarinnar og kynna tísku með nafni Intercoiffure, bæði með alþjóðlegum og eigin sýningum. Stöðugt er verið að þróa samtökin og fá inn nýja félgasmenn Mondial Performance Stærsti viðburður hvers árs er sýning sem haldin er í París í semtember ár hvert. Þar sem okkur gefst kostur á að sjá okkar besta, alþjóðlega hárngreiðslufólk sýna okkur nýjustu línurnar og hártísku hvers tíma. September í París er einnig frábært tækifæri fyrir unga fólkið okkar, þökk sé Guillaume sjóðnum. Þar fá þau tækifæri til að vinna á sviði sem getur rutt þeim braut að frábærum starfsferli. Mondail Performance er einnig staður og tími fyrir alþjóðleg samskipti.

Saga Intercoiffure

Intercoiffure var stofnað 1925 í Þýskalandi af hárgreiðslufólki frá Sviss, Þýskalandi, Frakklandi og Englandi. Árið 1930 stofnaði Frakkland sýna eigin deild. Eftir seinni heimstyrjöldina tók hinn frægi Guillaume örlög Intercoiffure í sýnar hendur. Eftirmenn hans sem forsetar Intercoiffure voru John Pfeil, Alexander de París og Maurice Frank.

Alþjóðleg uppbygging

 Vingjarnlegt og fagmannlegt samband á milli deilda í fimm heimsálfum bera vott um góða samstöðu innan samtaka okkar. Samskiptin á milli Evrópu, Asíu, Ameríku og hinna heimsálfanna eru kraftur Intercoiffure og áframhaldandi efling samstarfs er í allra þágu. Svæðauppbygging verður styrkt til að efla heimsuppbyggingu Intercoiffure og til að samtvinna sköpunarmátt samtakanna. Á fjögurra ára frestu er haldið heimsþingtil skiptis í Ameríku, Evrópu eða Asíu. Einnig til að sjá það nýjasta í tískunni hverju sinni. Hver deild heldur sýna eigin viðburði svo sem þing, sýningar, námskeið og vinnufundi.

hús Þjóðanna

hús þjóðanna er staðsett í miðju tískuhverfi Parísar og er það opið fyrir alla félaga. Þetta er hús félganna og eru þeir alltaf velkomnir. Þar eru einnig listaverk til sýnis eftir félaga innan Intercoiffure.

Hvernig gerist ég félagi?

Eftir að hafa skriflega sótt um til stjórnarinnar getur hver sá hárgreiðslumeistari orðið félagi sem á og rekur fyrirtæki. Sá hinn sami getur sér með drengilegri framkomu í góðum félagsanda og dugnaði í starfinu og þarf að sýna sig þess verðugan að fá að vera innan vébanda INTERCOIFFURE: Fyrirtæki getur einnig óskað eftir því að vera fullgildur félagi í INTERCOIFFURE. Þeir félagar sem hætta rekstri hárgreiðslustofu en vinna áfram á INTERCOIFFURE stofu geta sótt um að vera aukafélagar.

 

Hvernig gerist ég félagi?

Eftir að hafa skriflega sótt um til stjórnarinnar getur hver sá hárgreiðslumeistari orðið félagi sem á og rekur fyrirtæki. Sá hinn sami getur sér með drengilegri framkomu í góðum félagsanda og dugnaði í starfinu og þarf að sýna sig þess verðugan að fá að vera innan vébanda INTERCOIFFURE: Fyrirtæki getur einnig óskað eftir því að vera fullgildur félagi í INTERCOIFFURE. Þeir félagar sem hætta rekstri hárgreiðslustofu en vinna áfram á INTERCOIFFURE stofu geta sótt um að vera aukafélagar.

 Meðlimir

Nafn // Nafn stofu

Forseti : Sigurveig Runólfsdóttir// Perma

Varaforseti : Jónína S.Snorradóttir // Höfuðlausnir

Listráðunautur : Arnar Tómasson // Salon Reykjavík

Gjaldkeri : Marta Teitsdóttir // Elegans

Ritari : Ívar Sigurharðarson//Struktura

Meðstjórnandi : Hulda Hafsteinsdóttir // Medulla

Bára Kemp // Hár og Snyrting

Baldur//Proact

Elsa Haraldsdóttir // Salon VEH

Guðbjörn Sævar //Hjá Dúdda

Helga Bjarnadóttir // Carmen

Helga Ragnarsdóttir // Árgerði

 Svavar Örn //Senter

 

Tískustraumar 

Tískustraumar eru síbreytilegir frá degi til dags og frá ári til árs. Form - lögun - mótun og áhrif nýaldarinnar hafa sterk árhrif á okkur öll samt er hin persónulega mótun sterkust í hári hvers og eins. Hér á síðunni má finna myndir frá Íslandsdeild Intercoiffure.

Hárlínur

Hárlínur eru hannaðar í París tvisvar sinnum á ári. (vor / sumar og haust / vetur). Línurnar eru hannaðar af okkar þekkta alþjólega hóp (team) af hárgreiðslufólki. Þær endurspegla glæsileika og nýjustu straumana í tísku hverju sinni. Hópurinn vinnur mjög náið með þekktustu tískuhönnuðum heims. Þegar nýjar línur koma frá París eru myndir, tæknilýsingar og cd diskar sendir á alla félaga. Einnig fá þekkt tímarit og hárblöð um allan heim myndirnar senda til birtingar.

Intercoiffure Mondial

Intercoiffure eru fyrstu hárgreiðslusamtökin sem stofnuð voru í heiminum með hárgæðahárgreiðslu í huga. Intercoiffure samanstendur af 2500 hárgreiðslustofnum í 40 löndum. Þú finnur þær í borgum eins og París, London, New York, Mílanó, Berlín, Tokyo og Reykjavík. Eigendur Intercoiffure stofa eiga þátt í því að skapa tískustrauma dagsins í dag. Þeir vilja bæta og stunda aðra vídd í starfi sínu með því að gefa sér til annarra.

Markmið

Á heimsþinginu í Berlín í semtpember 2000 tók Klaus Peter Ochs við sem forseti alheimssamtakanna. Markmið hans eru: Auka fjölda félaga án þess að fara út fyrir markmið og anda Intercoiffure. Á þremur árum að auka fjölda félaga í 3000 í 50 löndum. Undir merkjum Guillaume sjóðsins ætlar Klaus Peter að efla og styrkja Uniora deild Intercoiffure. Efla samvinnu og vinskap innan hárgreiðsluiðnaðarins. Gera Intercoiffure að þekktu alþjóðlegu fæða vörumerki.

Unga fólkið

Markmið Guilaume sjóðsins er að styðja við bakið á unga fólkinu innan samtakanna. Þessu markmiði mun vera fylgt fast eftir þar sem unga fólkið er framtíð okkar. Intercoiffure mun leiða þau inn á mjög spennandi brautir á alþjóðlegum vettfangi.

 

 

 

 

 


Sími: 462 7079     Strandgata 37     600 Akureyri     medulla@mi.is